Þóran í Danmörku
lokaverkefnið mitt
17.06.2007 15:20:09 / thorasigrun

Hjálp!!!

Hjálp!!!

nú er sko lífið að hrinja, ég kemst hvorki inn á hotmailið mitt, né msn-ið mitt, vegna þess að einhver einhversstaðar hefur verið að asnast til þess að slá vitlaust lykilorð inn... og ég er því læst úti og veit ekkert hvernig í ósköpunum ég á að laga þetta :evil:

Sat nú fyrst og skældi bara yfir þessu, en tók mig síðan á og bjó til nýtt notendanafn og hélt kveðjustund yfir glötuðum pósti og glötuðum msn vinum...:^)

ef einhver þarna úti, veit einhver ráð til þess að lífga upp gamla meilið mitt, þá óska ég eindregið eftir hjálp.

Nú ef ekki, þá er nýja nafnið mitt thoras.msn@hotmail.com verið svoooo sæt að adda mér inn, eða senda mér meilin ykkar, því ég sakna ykkar ógurlega mikið:cry:

knús Þóran


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 20:27:29 / thorasigrun

jæja þá...

Já já, er alveg ógeðslega léleg að uppfæra þessa síðu, var meira að segja næstum búin að gleyma hvernig maður fer eiginlega að...

Nú, þannig eru málin: við komum á klakann 3. júlí og fáum afhent íbúðina okkar á Miðtúni 8, þann ca. 21. júlí, þangað til verðum við í góðu yfirlæti (vonandi :S) hjá tengdó.

Árni fer að vinna hjá B&L og ég verð á leikskólanum Heiðarseli, ásamt Örnu minni, en hann Hjalti fer í Holtaskóla.

Hér í Danmörku, er sumarið komið til að vera og sólskin og 38°C í sólinni alla daga og fer hækkandi. við erum því öll orðin vel útitekin og sælleg. Árni vinnur alla daga og ég reyni að vera pissfull við öll tækifæri...

hlakka til að sjá ykkur, knús....


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 20:25:49 / thorasigrun

Iceland here we come!!!

við erum að flytja heim.... vúbbí vúbbí!!!

hlakka ógó til, á auðvitað eftir að sakna Danmörku, sérstaklega veðursins...

knús í bili, fréttir seinna af atvinnu, skólamálum og húsnæði... verðum allavega í Keflavík

Þóran á heimleið


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 21:01:56 / thorasigrun

sumarið er komið!!!

já eða svona næstum því, sól og blíða nánast alla daga. Freknurnar komnar og ástarlífið í Bögehaven blómstrar, kettirnir sjást ríðandi á öllum götuhornum. Hjalti greyið var í stórhættu að fylgjast með litlu kisunum... og þegar mamma hans var að reyna að útskýra að við svona athæfi þyrftu kettir að fá að vera í friði (óáreittar) og elsku drengurinn svaraði bara: "Já en mamma, hann var að bíta í hnakkann á henni"   Þvílík ást!!!

Páskarnir eru næstum alveg komnir og við bíðum spennt eftir fréttum af lítilli frænku sem átti að líta dagsins ljós einhver tíman í mars.... en virðist ekkert vera að flíta sér við þetta.

Krakkarnir sjást varla þessa dagana, eru úti að leika alla daga með vinum í hverfinu, svo að mamman hefur nægan tíma til að lesa og leisa verkefni... Svooo dugleg!!!:$

knús og kossar í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 23:53:58 / thorasigrun

jæja

varð óvart litið á bloggið mitt og sá að ég er ekkert búin að blogga lengi... örugglega fleiri en ég tekið eftir því. og það er nú kannski bara vegna þess að líf mitt er bara svona viðburðarlítið þessa dagana... eða hvað?

Akkúrat núna er ég stödd á klakanum og það er sko nafn með rentu... það er bæði rignin, snjókoma og frost inn á milli, svona allt á einum og sama deginum. OMG! hvað mig hlakkar til að fara heim á morgun í 12°C...

Innilotan var fín, ógó gaman að hitta vini og fjölskyldu, fór auðvitað í saumó og skellti inn nokkrum myndum, sem sennilegast enginn hefur gaman af nema ég sjálf :S

Er núna vel nestuð og búin að hlaða í töskurnar, bíð bara eftir að geta farið í flug.

og til hamingju með skvísuna Elva mín...

knús


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 08:41:48 / thorasigrun

bilinn...

hallo hallo eg er ekki daud, bara frekar upptekin, eda eitthvad svoleidis Jolin og aramotin voru yndisleg, nutum thess ad vera med godum vinum. Nuna er nyja arid byrjad og eg er ekki enn farin ad sja ad thad ætli ad verda gott ar.... Billinn minn er buinn ad bila svooooo oft ad thad liggur vid ad hann thurfi ad fa sitt eigid blogg og ef satt skal segja tha er hann ad øllum likindum daudur nuna, endanlegur urskurdur verdur um helgina... Eg er frekar threytt og pirrud yfir thessu, veit ekki alveg hvad verdur um mig, ef eg tharf ad fara ad taka allt ad 7 strætoa a dag til ad lata heimilid fungera... En thad kemur i ljos... Nuna er eg upp a nad og miskun godra vina og vinnufelaga ad fa far hingad og thangad, mætti halda ad eg væri ordin Thora felo, vantar bara ad eg fari ad betla... omg, kannski er bara minn timi kominn til thess ad verda hluti af pakkanum... mer er ekkert ætlad ad mennta mig, vinna, hvad tha ad sinna ødru eins og børnum og heimili.... kv. Thora threytta...

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 16:49:17 / thorasigrun

jólin jólin

sælt veri fólkið og gleðileg jól

Desember er senn á enda, leið alltof hratt og nýja árið framundan. Ég er búin að hafa nóg að gera í vinnu og skóla, búin að skila lokaritgerðum og taka próf. Árni er búinn að sjá um heimili og börn á meðan, ásamt því að taka að sér viðgerðir á hinum ýmsu heimilistækjum... nei nei, ekki fyrir aðra, heldur hafa flest heimilistækin tekið upp á því að bila núna fyrir jólin og þess á milli er bílinn bilaður... múhahahahaha, þetta er hætt að vera fúlt og farið að vera ógeðslega fyndið, svo fyndið að ég grenja nánast úr hlátri :lol:

Helgin fyrir jól var eina lausa helgin hjá okkur og því varð að troða öllu þar á, jólakort, jólaþrif, jólagjafainnkaup, jólabakstur og julefrokost. Á laugardeginum, héldum við svona líka flott "julefrokost" með vinum okkar, þeim Maríu og Smára (myndirnar eru á barnalandi). Svo á sunnudeginum var auðvitað bakað, byrjað á piparkökum, svo súkkulaðibitakökum og síðast lagköku. Piparkökurnar voru svo auðvitað málaðar, Arnan mín sat í næstum 2 tíma að mála piparkökur (svona getur fullkomnunaráráttan farið með mann...), en þær voru líka ofsalega flottar hjá henni.

Jólahelgin kom og fór. Föstudag eftir vinnu var krökkunum hent í nágrannana og farið að versla síðustu jólagjafirnar, komið heim, þrifið, jóltréð skreytt, svo sest niður með popp og kók og horft á "Polarexpress" (veit ekki hvað hún heitir á íslensku, eða ensku, en þetta er jólamyndin með honum Tom Hanks, ÆÐISLEG). Þorláksmessan hófst síðan með afmælisboði hjá vinkonu krakkanna, henni Júlíu og voru krakkarnir sendir þangað á meðan foreldrarnir hlupu níður í bæ til að versla matarstell. Svo settumst við niður í með góðum vinum og fengum kaffi og meðlæti. Um kvöldið fórum við síðan í matarboð til Sólrúnar og fengum skötu og saltfist, ómissandi á Þorlák... þar vorum við í góðum félagsskap og spilað og spjallað fram eftir kvöldi.

Á aðfangadag, komu svo Hrönn, Halli og strákarnir til okkar kl. 10 um morguninn og stuttu seinna komu þeir Kertasníkir og stúfur í heimsókn og gáfu börnunum sælgætispoka með íslensku sælgæti og jólakveðju.  Um kvöldið borðuðum við með nýja matarstellinu okkar og fengum Hamborgarahrygg og svo heitt súkkulaði seinna um kvöldið. Við fengum margar flottar og fallegar gjafir og þökkum kærlega fyrir okkur.

Á jóladag var síðan haldið til Hinnerup í hangikjöt hjá Hrönn og Halla, fengum örugglega besta eftirrétt sem ég hef bragðað hingað til...(þið sem komið næst til Danmerkur, ef þið viljið gleðja mig, komið með súkkulaðirúsínur) og maturinn var líka meiriháttar... Takk fyrir okkur.

Nýja árið framundan, aldrei að vita nema það komi frekari fréttir af okkur á nýja árinu


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 20:12:45 / thorasigrun

sælt veri fólkið

allt gott að frétta af´okkur, ég er farin að vinna aftur eftir of langt og leiðinlegt verkfall.

Komin á kaf í verkefnavinnu í skólanum, er að rannsaka t.d. foreldrasamstarf í grunnskólum, útfrá foreldrum, þannig að ef einhver veit af skemmtilegri eða góðri rannsókn í þeim efnum, endilega sláið á þráðinn.

Krakkarnir hress og kát, eru meira og minna hætt að sjást hér heima, vilja bara vera úti og leika við vini sína, sem er auðvitað bara gott mál, þá næ ég að læra aðeins inn á milli.

Bloggið mitt verður frekar snubbótt og leiðinlegt, þangað til að ég er búin í prófum þann 11. desember. næstkomandi....

þangað til næst, knús til þín Hófí mín og vink til hinna...:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 11:00:23 / thorasigrun

....

er á klakanum, vúhú, það er nú reyndar bara gott veður hérna... 10 stiga hiti og svona...:S

Er í innilotu að hlusta á fyrirlestra og leysa verkefni allan daginn, frekar  þreytandi að sytja svona mikið

Fer í saumó á morgun og hitti allar gellurnar, hlakka ógeðslega mikið til þess

svo verðið þið bara að fyrirgefa bloggleysið, nenni ekki of miklu....

knús frá mér


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 12:30:22 / thorasigrun

nýja starfið

nýja starfið er alveg ofsalega skemmtilegt, mjög krefjandi, það er alveg brjálaðslega mikið að gera hjá mér, að púsla saman, skóla, vinnu og heimili.... þannig að ég á nú kannski ekki eftir að taka mig svo mikið á í blogginu :S

En langar að nota tækifærið og óska henni Írisi minni og Binna til hamingju með gullmolann sinn, knús og kossar frá mér

kv. Þóra


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 17:54:37 / thorasigrun

jæja jæja

loksins loksins, bloggaði hún svo.

já það er nú bara þannig að ég er búin að vera í mega bloggleti, en , nú er komið að því.

Fór í rosalega flott ferðalag með fjölskyldunni minni, hérna í byrjun ágústs, ofsalega gaman í góðum félagsskap.

Svo var ég víst að fá vinnu, hihihihihi, en leiðinlega við það er að þetta er eins og er tímabundin staða, nema kommunan ákveði að laga sín mál og skera minna niður en þeir ætluðu sér.

Svo fer nú að líða að því að ég kem á klakann, en mæting er 13. sept., var eiginlega að vona að gellurnar myndu kannski hafa smá saumaklúbbshitting um helgina, kannski með nýjustu meðlimunum.........

knús frá mér


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 19:23:14 / thorasigrun

...........

já já, ég er mega löt að blogga, er að vinna í því, meira seinna

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 16:28:18 / thorasigrun

ferðalagið!!!

á morgun, á morgun, kemur fjölskyldan mín, þ.e. pabbi, mamma, Hófí systir og Ólöf Björg dóttir hennar og Óli bróðir og við erum að fara í ferðalag um Danmörku.  Pabbi er að halda upp á 50 ára afmælið sitt og bíður okkur öllum í reisu í tilefni þess.

Við byrjum í Köben, svo Bornholm, þá Fjón, Legoland og svo heim til okkar, þetta verður meiriháttar.

Það eina sem gæti hugsanlega skyggt á ferðina er þessi rigningarspá sem er á sveimi hérna, það mátti svo sem reikna með því að Íslendingarnir kæmu með regn með sér.... sem er svo sem í lagi, ef þau skilja rokið og kuldann eftir.

knús á meðan, ég ætla að skemmta mér


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 22:37:22 / thorasigrun

sorry sorry sorry...

já blogg letin lagðist svo sannarlega yfir mig. Sumarið byrjaði nefnilega í byrjun Júní hérna og síðan þá er ég búin að vera meira og minna í sólbaði :haha:  Það er meira að segja orðið svoooo heitt hérna að það er nánast orðið ólíft að vera úti og inni, sami hitinn, eini góði staðurinn í húsinu, virðist vera ísskápurinn og það er bara svo takmarkað hvað maður getur haft hann lengi opinn svo maturinn skemmist nú ekki og rafmagnsreikningurinn verði óviðráðanlegur....

Þetta er búið að vera meiriháttar sumar, eintómar strandarferðir, ÚTI grillveislur, sólhlífar, sólarvarnir og auðvitað GELLUsólgleraugu (takið eftir þeim á myndunum;))

Svo erum við að fara í ferðalag með minni familíu í næstu viku og við teljum sko niður dagana, það verður meiriháttar, hlakka ekkert smá til. Ætlum að skoða Danmörk meira og minna, halda upp á nokkur afmæli, brosa, hlæja, og skemmta okkur konunglega.:)

Ykkar allra er sárt saknað, knús og kossar frá mér og ps. er búin að opna barnaland aftur og skella inn nokkrum myndum.


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 19:17:59 / thorasigrun

hæ hó jibbý jei...

 já eða þannig....

17. júní kom og fór, og að sjálfsögðu tóku allir Íslendingar í útlöndum þátt í hátíðarhöldum, þ.e.a.s allir nema íbúrar í Árósum, Danmörku.  Nei nei, stjórn íslendingafélagsins, hafði ekki tíma til að sinna afmæli Íslands, þar sem að þeir voru að sinna eigin málefnum.....

og svoleiðis hófst dagurinn hjá okkur, með engum hátíðarhöldum, sem reyndar breyttust svo í frábært pizzupartý, með singstar, bjór og frábærum félagsskap... Takk fyrir mig.

knús Þóra

ps. fyrir ykkur afbrýðissömu Íslendinga, þá er ég búin að lána ykkur sólina í bili, svo þið getið nú hætt að væla yfir leiðinda veðri.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9